|
|
Thursday, May 08, 2008
hjúkk hjúkk ég get orðið bloggað á nýja svæðinu hér>> www.123.is/kjonk sjáumst þar:)
Posted at 3:04 pm by kjonk
verð að hafa orð á því hér (þó ég fái ekki borgað fyrir að segja það) hvað hann Boggi er duglegur :<) hehehe.... Hann á nefninlega svo frábæra konu sem er allveg rosalega dugleg, of dugleg stundum ;) en hún tók til hendinni heima svo um munaði :) það er búið að henda ýmsu út, færa ýmislegt til og mála! takk fyrir!!! Boggi hjálpar til við þetta... hahaha..... hann má nú eiga eitt og vera stoltur af! á meðan Helga rauk til og keypti klemmur í gær fór Boggi og keypti þurrkara :) En ég vil samt benda á, að það sem '70 árg getur gerir '69 árg svo MIKLU betur :) Jæja Boggi! ég er búin að blogga hvað þú ert duglegur:) hahaha.....
Í gær voru kúlurnar teknar úr Prins (geltur) og var því ekkert annað í stöðunni en fara með hann og trippin tvö í sveitina mína. Rúntuðum á Smyrla, fengum mat og drukk, slepptum hestunum útá tún, brunuðum austur aftur, hittum bændurna í Bjarnanesi, fórum inn í kaffi og ég fékk annann drukk, við sátum og spjölluðum í dágóða stund, skelltum okkur svo í hesthúsið og gáfum og settum inn, sáum svo að það var ljós á Seljavallahjáleið, bönkuðum uppá hjá Geira og Völu til þess að taka í spaðann á honum Ásgeiri sem er endalaust melló og líbó og gerir allt sem maður biður hann um, hann setti inn fyrir okkur heyrúllur á meðan við vorum í sveit sólar. Okkur var auðvitað boðið inn og í vínsmökkun með svindli, ég segi svindli því ég var nú ekkert að hrækja því! drakk bara úr glasinu eins og hefðakonum sæma þykir! hehe...
Heim í ból komum við ekki fyrr en seint og um síðir en mikið rosalega er ég stolt af því að hafa heimsótt þrjá bæi á einninúllátta! eða sko á einu kveldi:) þetta var svo gaman að ég bara verð að draga hann Venna minn í svona leiðangur með mér fljótt aftur:) ég fór nú reyndar á fjóra bæi! skrapp nú í holtsendann að kíkja á framkvæmdir og knúsast í strákunum mínum :* Aron spurði; Stína, hvað ertu gömul? haha.... honum finnst skrítið að ég er kölluð 'amma' á heimilinu! HAhaha... Vignir dundaði sér við að drepa flugu... :/ ég reyndi að kenna honum að vera hræddur við þær:) en það gekk ekki!
góðar stundir:*
Posted at 11:12 am by kjonk
Wednesday, May 07, 2008
ég er svo vond mamma!!! allveg hræðilega vond mamma :/ Þannig er mál með vexti að Ottó Marwin minn fór í tvö próf í gær það voru munnlegt próf í dönsku f.h. og munnlegt próf í ensku e.h. og af hverju er ég vond mamma?!!! ég kolfellldi drenginn í dönsku! jú, í prófinu var hann spurður hvað mamma hans starfar!!!!! hvernig segir maður 'gjalkeri sýslumanns' á dönsku? kennarinn vissi það nú ekki einu sinni!!!!!? hahaha... er ég ekki bara 'pengepige' hahaha.... en ef maður fer í orðabókina góðu er gjaldkeri = kasserer eða sko, tilsynsförende embedsmand! er það ekki ég? Svava?! og svo segir orðabókin þetta; sýslumaður = 'af kongen udnævnt embedsmand som repræsenter si' þar hafiði það! góðar stundir
e.s. Marwin var bara spurður um það hvað pabbi hans starfar og þar er af nógu að taka svo ég held hann hafi sloppið fyrir horn.... :)
Posted at 11:13 am by kjonk
ég get nú svo svarið það að ég var búin að borga hjá 123.is áður en þeir lokuðu síðunni minni! og það gengur ekkert hjá mér að láta opna aftur! en þar sem ég er með eindæmum róleg manneskja þá bíð ég bara eftir því að þeir opni en það er samt frekar erfitt að geta ekki bloggað þegar maður getur ekki bloggað!! :/ haha... af því að ég er nú duglegasti blogger ever! ho ho en hvað um það hér kemur allavega eitt... um ekki neitt:) þetta er allavega sama gamla tuggan, læk olveis ;) Þetta er eiginlega mjög erfið vika! þar sem hún telur allveg 5 vinnudaga :) það var svo gott að fá sumardaginn fyrsta = frí, 1. maí/uppstigningardag = frí, ekkert frí í þessari viku (jæks), en svo mánudaginn 12. maí, annar í hvítasunnu = frí :) næs;) Ég er lítið búin að nenna í hesthúsin.... en dreif mig í gærkvöldi til þess að vera eitthvað með honum Venna mínum sem er ferlega duglegur að fara í hesthúsin til þess að brasa eitthvað og ég var bara farin að sakna hans ferlega mikið.... :) Við tókum hann Prins (Tittinn) sem er vetur gamall, yfir í hesthúsið til okkar til þess að spjalla aðeins við hann, gefa honum kúlur og spekj'ann :) ætluðum að gera þetta í vetur! en eins og pabbi (eigandinn) sagði; betra er seint en alldrei! jebbs! Prófuðum að sækja um beitland hjá bænum í gær... eigum nú ekkert von á að fá úthlutað! en það kemur í ljós... Nú, svo koma Legó-arnir heim í dag, frábært hvað það er búið að vera gaman og gott hjá þeim þarna útí USA :) maður er auðvitað búin að fylgjast með á síðunni hans siggalitla :) Anna María hefur séð um að koma fréttunum yfir hafið og gera mann grænann úr öfund í leiðinni! því auðvitað langaði manni allveg að kíkja í mallið til dæmis!! hehe.... ég prófaði að ath um aðra vinnu í gær og svo kemur bara í ljós fljótlega hvort ég sæki um eða ekki :) ég læt auðvitað vita:) Langar og langar ekki að skifta um vinnu..... æji! veit ekkert í hvorn fótinn ég á að stíga þannig að ég stend bara í báðar ho ho ho.... best að hætta að bulla um ekki neitt... góðar stundir
Posted at 10:37 am by kjonk
Tuesday, April 01, 2008
Nú er ég flutt hingað..... góðar stundir:)
Posted at 12:00 pm by kjonk
Monday, March 31, 2008
státaði mig á leti í gær... en ég verð að hryggja ykkur með því að ég var bara að plata! ég var löt og skrifaði blogg... en um leið og ég loggaði mig út, kom yfir mig einhver ógnarkraftur! skil þetta ekki! Mokaði semsagt (í orðsins fyllstu) útúr herberginu hans Ottós Marwins!! phúff þvílíkt samansafn af allskonar rusli! hehe... hann er duglegur við vera latur að taka til hehe... en saman tókum við herbergið hans í nefið újehhh... síðan var arkað af stað í hesthúsin og þar sem mér fannst skítkalt fór ég ekki í hnakkinn heldur mokaði stíuna hjá Vargi og Gróða! semsagt = leti á sunnudögum?!! ekki þennann sunnudag;) sveif um eins og Ajax-stormurinn! þvílíkur var krafturinn hehe.... Í dag er svo fermingarafmæli!!! töttögogfemmár! jebbs, ég á 25 ára fermingarafmæli í dag! seiseisei... Venna fannst það eitthvað skrítið! því það væru ekki nema svona mestalagi 10 ár síðan hann fermdist hahaha... ég hef semsagt fermst langt á undan honum hahaha.... en svona er þetta bara, tíminn líður, eiginlega flýgur áfram. Ég verð að fara að dröslast í heimsókn í sveitnina mína, er að safna mér pening áður en ég held af stað þangað:) fékk nefninlega þennann líka æðislega góða lax á hótelinu mínu þarna fyrir páska, allgjört lostæti:) en þar sem heimsendingar- þjónusta hótelsins var ekki með posa (hehe) þá á ég eftir að borga fyrir herlegheitin :) en þetta stendur til bóta:) er að verða komin með hálsríg (mikill peningur undir koddanum) æji voðalega getur maður bullað seisei... horfði á Venna minn fara á bak honum Hirti í gær, af því að þetta á nú að vera gæðingur fyrir mig! mér leist nú ekki á blikuna ha!? úff ég hefði nú öskrað úr hræðslu! en ég held nú að ég verði að fara að skammast til þess að fara á bak! en bíð bara eftir aðeins betra veðri, ha? en hvað um það, vonandi verður 123.is orðið klárt næst þegar ég þarf að tjá mig:) hlakka til að hefja rausið á nýjum stað :) þangað til næst á nýjum slóðum, góðar stundir
Posted at 9:39 am by kjonk
Sunday, March 30, 2008
jájá það er allt í einhverju bulli á 123.is þar sem einhver uppfærsla fer fram. ég var að reyna að kíkja á vini mína sem þarna blogga en fæ allta sama vefinn upp! og efst á þessari síðu stendur; velkomin á vef ellimálanefndar þjóðkirkjunar! hahaha... snilld!? það er semsagt sunnudagur í dag, dagur letinnar:) samt tók ég nú aðeins skurk hér heima en bara rétt yfirborðið:) talaði við Halldóru sætu systir mína áðan... hún spurði mig hvort ég væri eitthvað langt niðri í þunglyndi því það væri enginn hemja hvernig ég hagaði mér..... ég get svo svarið það að ég hef ekki verið auðveldasta manneskja í umgengni undanfarið! ég viðurkenni það! ég missteig mig... þetta var mjög slæm tognun en nú er allt að lagast... eftir að fólkið sem ég elska mest og elskar mig, bentu mér á það! inn mæ feis! að ég þyrfti nú aðeins að slaka mér! jájá þetta er auðvelt að viðurkenna á prenti hehe... en anskotanum erfiðara að ræða það! en svona er þetta bara, maður ætlar ekki að vera vondur og leiðinlegur, maður ætlar ekki að tala illa um aðra, maður ætlar ekki koma illa fram við aðra... en svo kemur það fyrir að maður misstígur sig og þá er voðinn vís! og þar kemur sér með eindæmum vel að eiga góða að! ója held´ann sé að lægja úti... og þá er spurning um að enda þennann dag í hnakknum!! já þú ert að lesa rétt :) allveg spurning um að skella sér í útreiðatúr með elskunni sinni, bara við tvö, ríðum við inní sólsetrið (segir maður 'sólsetrið' ?) hahaha... mmmm... það er svo gott (þessa stundina) að vera ég :) jæja! kemur mútta með sæng í þurrkarann, góðar stundir
Posted at 2:50 pm by kjonk
Friday, March 28, 2008
það fer jú að líða að því að ég byrji að blogga á nýjum stað er að bögglast við að búa mér til síðu á 123.is :) eða hérna sko :) . þetta á að vera svo assssgoti auðvelt... og er það örugglega en hvernig í ósköpunum set ég smáfólkið í 'sértengla' ??? ég er bara ekki að fatta það!!! enda ljóska frammí fingurgóma hehehe.... en ég gat nú sett inn mynd og eitt albúm duglegan ég ekki meira um það í bili við erum búin að fá snjókomu hér í firðinum fagra í dag! þetta þikir nú ekki fréttnæmt tshuu.... en ég var ekki búin að segja ykkur frá því að við fengum gefins tvo hesta um páskana!!! þeir heita Hjörtur og Bróðir, komu frá Selfossi og eru frá þeim heiðurshjónum Sævari og Sibbu. Hjörtur og Bróðir eru eldgamlir en fallegir hestar, held að annar þeirra sé 18 vetra og hinn 20 eða 22 vetra!! sem er nú mjög mikið! Ætluðum að gefa Hjört áfram en svo tímdi Venni því ekki. Svo segir hann núna að Hjörtur sé farinn að bíða eftir mér inní hesthúsi rétt eins og hann Vinur! ég veit ég veit ég ætti nú að fara að skella mér á bak! en nei! er ekki á þeim buxunum.... spurning um að vera þá buxnalaus en aftur er svarið nei nei hehehe.... Um helgina á svo að dúndra ærlega í æðri endann og koma sér uppúr þessu sleni! þetta gengur ekki lengur! en hvað um það, læt þetta duga, góðar stundir
Posted at 2:37 pm by kjonk
Thursday, March 27, 2008
þú heldur auðvitað að ég ætli að fara að tala um báta! neinei alls ekki enda löngu liðin tíðin sú þegar ég þekkti hvern einast dall (SF dallana) á mastrinu þegar þeir voru hér fyrir utann ósinn :) svona var ég nú einu sinni klár:) ójá og er sko ennþá rosalega klár!  það er ekkert að brjótast um í hausnum á mér.... ekkert held ég sé að berjast við það að verða ekki veik... er með einhvern hálsskít og hausverk og bara bölvanlega kalt eru það ekki einkenni þessarar blessuðu pestar sem er að ganga? ég veit það ekki! úti myndast hann við að snjóa... ótrúlegt veðurfar á annars snjóléttasta svæði Íslands og þó víða væri leitað! ótrúlegt allveg hreint og ég verð að segja að ég er orðin hundleið á þessum kulda. já talandi um kulda, hér er búið að vera s...kalt í allann vetur! svo er verið að tala um hlínun jarðar!!!! halló! en jæja, best að hætta þessum ljóskupælingum hehe... klessta klessan segir bless - góðar stundir
Posted at 11:56 am by kjonk
Wednesday, March 26, 2008
mánudagur í gær MIÐVIKUDAGUR í dag!! þetta vissi ég! vikan er að verða búin:) Datt eitthvað niður í vondar hugsanir í fyrradag sem mér fannst ekkert voðalega gott! jújú... þetta getur gerst... en í dag er allt gott að frétta:) ég kíkti á strákana mína í Holtsenda í gær og fékk nýsteiktar kleinur og smá skemmtiatriði hjá honum Aroni sem er þvílíkur pjakkur... allavega þegar hann er kominn í spider-man eða bat-man búning... eða báða búningana bara! þá er sko hægt að hlaupa, klifra, hoppa og jafnvel fljúga! hahaha... allgjör prakkaradúlla:) alltaf gaman og gott að skreppa í sveitina. efst í mínum huga í dag er Ottó Marwin þegar hann var ekki allveg búinn að ná tökum á íslenskunni hihi...:) þá sagði hann t.d. 'staks' en meinti strax 'stíhbúl' en meinti bílskúr 'skeljung' en var að tala um melónu! 'stheippa' en meinti geyspa 'bappallinn' en var að tala um pallinn sinn sem hann stóð t.d. á til þess að ná uppí vaskinn til að bursta. svííítísvít :) það var erfiðara að skilja Róbert Marwin stundum... sum orðin hans er ekki einu sinni hægt að setja á prent! eins og t.d. hvernig hann sagði 'Halldóra' !! hehe... en hann hét t.d. Óbó = Róbert, Okkó = Ottó, Ísó = Ísold svo þegar hann gat nú orðið sagt 'handaða' = Halldóra þá uppgvötaði hann eitt allveg stórmerkilegt... 'handaða' allveg eins og 'bjóstahandaða' sem úleggst á íslensku einhvernvegin svona: 'Halldóra' allveg eins og 'brjóstahaldari' !!! hahahaha.... væmin og klesst segi ég þetta gott í bili, góðar stundir
Posted at 12:22 pm by kjonk
|
|
|