|
|
Tuesday, March 25, 2008
ef maður einblínir á ljósu punktana þá verður næsta helgi komin fyrr en varir!!! því auðvitað er mánudagur í dag! ahhh.... miiiikill mánudagur... það var frekar erfitt að koma sér á lappir í morgun en ég gerði mér nú samt lítið fyrir og gekk í vinnuna :) og svo er dagurinn búinn að líða þokkalega hratt, sem betur fer. Fermingapeningurinn kominn í bankann :) og Róbert ríki alsæll með það hehe... hefði nú verið flott að fá 2000 kall fyrir hvern fimmara!! hahaha en maður má nú ekki vera með þessa græðgi. Hér er svo búið að snjóa í allann dag! þessi vetur ætlar engann enda að taka úfff... Í morgun ætlaði ég að skella mynd af fermingarbarninu hér inn en ég hreinlega bara kannða ekki! hefði samt getað sett inn gamla mynd af dóttlunni hehe... en hvað um það, með hvaða íslensku bloggsíðu mælir þú? er að hugsa um að flytja þetta bull mitt á góðann stað þar sem ég get puðað inn myndum með lítilli fyrirhöfn við svona eina og eina færslu! jamms og játs með þessum orðum kveður væmna klessan í bili, góðar stundir
Posted at 3:44 pm by kjonk
Sunday, March 23, 2008
fyrir þremur árum (nákvæmlega uppá dag) fermdist stóri strákurinn minn. Það var yndislegur dagur, gott veður og við vorum svo afslöppuð og mér fannst allt svo fallegt! meiraðsegja ég sjálf! ég var full af stolti með hamingjuklump í mallanum. í gær fermdist svo litli minn, dagurinn var allveg æðislegur, vöknuðum snemma, vorum í rólegheitum, fórum á hafnarbúðina og keyptum 'flipper' sem er sykurleðja og frekar subbulegt að borða þetta fyrirbæri hehehe... og Marwininn var kominn í fermingarfötin, en þetta subbaðist ekkert :) fórum í kirkjuna á tilsettum tíma, Róbert var nokkrum skrefum á undan mér og Brói var fljótur að loka á trínið á mér hehe... 'engar mömmur hér inn takk!' ég vissi allveg að við áttum ekkert að fá að fara á bakvið þar sem plássið er ekki stórt, en halló! má ég ekki segja nokkur orð við hann í viðbót? nei! hahaha... jæja, ég strunsaði inní kirkju, plantaði mér á fremsta bekk (fyrir aftan sæti fermingarbarnanna) og beið eftir Venna mínum og Ottó svo koma að því, messan byrjaði og inn komu þessir yndislegu englar! ég fór að gráta! úfff.... hamingjuklumpurinn varð svo stór að ég réði ekki við hann!!! gamla væmna klessan ég! hehe... ég náði að harka af mér án þess að nokkur sæi tárin sem hrundu niður í kjöltu mér (væmin? já!) og nokkrum sinnum varð ég að ná athyggli Viktors Freys uppáhalds litla frænda míns sem ég kís að kalla súperman, til þess að hafa athygglina á einhverju öðru til þess að skjæla ekki meira. jebbs! hamingjuklumpurinn getur stækkað og stækkað og stækkað... veislan var hreint frábær, við fengum um 160 gesti! (barnið á margar fjölskyldur) hann fékk fallegar gjafir og marga peninga, MARGA PENINGA! hann á t.d. allveg nýtt herbergi! rúm, skrifborð, náttborð, hillur, 4 lampa, sæng og kodda, rúmföt svo fékk hann skart, veski, svefnpoka, taukörfu, fyrstu skóna sína aftur:) og margt margt fleira. Takk fyrir drenginn minn þið öll! en nú er mál að linni, góðar stundir:*
Posted at 8:12 pm by kjonk
Friday, March 21, 2008
hvað er ég búin að gera í páskafríinu só far....!? taka á móti gestum.... fara með að Horni að örmerkja... hitta geithafur sem heitir Dagur, hann er víst svo líkur Degi B Eggerts!! fá knús hjá Svanfríði... heyra í Svövu minni og Sigga mínum... hitta Viktor Freyr yndislegasta besta litla frænda minn... hitta mömmu hans og pabba... essemmessast við Jónu Björt-með kái... taka á móti fleiri gestum... og svo bara ýmislegt fleira!
á morgun er svo stóri dagurinn, litla krílið mitt fermist. fórum á smá æfingu í kirkjunni í gær, skírdag! sem mér fannst nú hálfhallærislegt! að geta haft æfingu fyrir fermingu á skírdag því ekki vill sérann ferma þann dag! ..en svona er þetta bara.
hafið það gott elskurnar mínar því það ætla ég að gera áfram...
góðar stundir
Posted at 11:39 pm by kjonk
Wednesday, March 19, 2008
ekki fór ég nú á fundinn sem ég ætlaði að skella mér á í gær og er því ekki fróðari um lýsingu í dreibýli! en ég skellti mér á hrossaræktunarfund í Stekkhól í staðin (til þess að geta verið með Venna mínum) og það var nú bara fróðlegt og skemmtilegt! Það er t.d. verið að prófa hita í gólfum í hestastíum til þess að spara spæniskostnað sem er notabene skelfilega mikill svo er verið að rannsaka spatt í allítarlegri rannsókn á Hólum, og svo má maður t.d. ekki vera of mikið innanum beljur því þá hættir maður að þekkja hesta hahaha... nei þetta var nú grín! en já, þarna kom margt skemmtilegt og fróðlegt fram þó svo ég finndi ekki kjarkinn minn þarna, en ég held nú bara áfram að leita að honum. er svo í fríi í dag.... til þess að gera ýmislegt en þetta ýmislegt gengur nú allsvakalega hægt ! verð að fara að truntast í að baka smá.... áður en ég fer í klippingu þangað til næst, góðar stundir
Posted at 3:28 pm by kjonk
Tuesday, March 18, 2008
er að spá í að mæta á þennann fund hér ! þó ekki væri nema fyrir hann Bogga minn sem liggur bara í sólbaði á einhvejum dalli útá ballarhafi í útlöndum en já, er að hugsa um fara og hlusta á þetta lið og kanski fara frammá og heimta hreinlega bara lýsingu niður afleggjarann í hesthúsin okkar þarna inní Nesjum! En svo veit ég ekki hvort ég hef bein í nefinu til þess að þora að standa upp og opna mig um þessa umræðu! En það er alldrei að vita... kanski kemst ég ekkert á þennann fund en mig langar allveg að fara sko því hann Venni minn þarf að vera á öðrum fundi, man nú ekki hvaða fundur það er...e-ð hrossa dæmi :)
en hestavöllurinn okkar, húsin og aðstaðan þarna í Nesjunum er mér mikið hugsunarefni þessa dagana, er nefninlega voðalega hrædd um að nýji vegurinn um Hornafjörðinn verði lagður allt of nálægt þessu frábæra svæði sem 'við' hestamenn erum búnir að byggja upp og gera flott og erum enn að byggja.
En lýsing frá þjóðvegi, niður afleggjarann að Stekkhól, jafnvel allveg niður að hesthúsum myndi vera allveg stórkostleg framför! það er mín heitasta ósk í dag.
góðar stundir
Posted at 2:36 pm by kjonk
Monday, March 17, 2008
ég fór ekki að kaupa fermingargjöfina á föstudaginn... ég vaknaði ekki snemma á laugardaginn... ég tók nú samt aðeins til og skúraði stofuna á sunnudaginn.. ! klappa fyrir mér!! hehe.... og ég saumaði gardínur á laugardaginn!!! tókstu eftir þessu? ÉG saumaði... ÉG! hahaha... og það gekk bara þokkalega vel!! ÉG - SAUMA - ÉG!!! Róbert Marwin fékk fermingargjöf í gær... Við Venni (aðalega Venni) byrjuðum að setja hana saman í gær þetta er semsagt, skrifborð og náttborð sem við (hann) settum saman svo eru einhverjar hillur enn í pakkanum.... skoðum það í dag... kanski.... það er auðvitað brjálað að gera.... þarf að járna, funda, baka, þvo og þrífa, smyrja, fynna myndir... jájá ef það væri bara hægt að snúllast í því sem snýr að fermingu þá væri þetta 'písoffkeik' ! en við erum svo frábær og æði að við verðum að vera allstaðar! hehe... sko allstaðar! en ætla nú að hætta þessu pikki um eiginlega ekki neitt! góðar stundir
Posted at 10:52 am by kjonk
Friday, March 14, 2008
einu sinni vann ég í kökuvagni niður á torgi.... það var hundleiðinlegt! en eitt gott stendur uppúr, ég kynntist fjöllistamanninum Katli Larsen :) Ketill kom á hverjum degi, keypti sér brauð og fékk gefins brauð frá í gær handa fuglunum á tjörninni... einn daginn kom hann síðan færandi hendi og gaf mér málverk eftir sjálfan sig! mér þykir óendanlega vænt um þessa mynd. Ástæðan fyrir því að ég rifja þetta upp er þessi frétt
Marwin minn lét mig lesa yfir smásögu eftir sjálfan sig í gær. Allveg stórmerkileg og flott saga! ég hélt þetta væri ritgerð uppúr bók sem hann hefði lesið! jájá... ég hélt það! Sagan er frábær, það blundar í honum rithöfundur og skáld :) hann sækir þetta til langafa Trausta, held þetta sé Eyjafjallablóðið sem dunar um æðarnar....
nú líður að fermingu.... og það líður allt of hratt seisei... fermingardagurinn er rétt handan við hornið er að hugsa um að druslast í það í dag að kaupa fermingargjöfina það er ekkert stórmál því gjöfin bíður í búðinni :) var nú búin að ganga frá þeim málum þó svo mér finnist ég ekki koma nokkrum sköpuðum hlut í verk!! er nú samt búin að baka hérumbil allar skonsurnar! ætla að baka aðeins fleiri:) 'djöstinnkjeys' hehe...
og svo er sko bara komin helgi rétt einu sinni enn! sem er óneitanlega mjög gott.... því þá þarf ég allsekki að vakna í fyrramálið, verð nú samt örugglega vöknuð snemma... eins og alltaf um helgar. erum að hugsa um að setja upp bráðabyrgðaskáp inná fína baði erum nefninlega ekkert á leiðinni í borgina á næstunni! en maður veit alldrei, þá er nú ekkert annað í stöðunni en rífa niður bráðabyrgða dót og skella upp nýju! er þaggi?
hnakkurinn minn er að fara í borgina.... jón söðli ætlar að selja hann fyrir mig, sá góði karl:) ég var bara ekki að fýla hnakkinn... sem er nú ljótt því strákarnir mínir þrír gáfu mér hann í afmælisgjöf... en þettersonna bara
en nú er kanski ráð að snúa sér að vinnunni...
góðar stundir, góða helgi gott fólk
Posted at 1:31 pm by kjonk
hahaha... það eina sem ég hef að gera frameftir morgni er að skoða slúðrið í blöðunum :) þetta er t.d. allveg magnaður anskoti!
...en það kemur kanski eitthvað blogg í dag... ...lofa engu samt... ...góðar stundir!
Posted at 10:10 am by kjonk
Thursday, March 13, 2008
Í Fréttablaðinu 9. mars s.l. á bls. 29 er heilsíðuauglýsing frá Hornafirði. Þar eru talin upp laus störf hjá skólunum okkar ásamt fleiru. Neðst á síðunni er síðan farið fögrum orðum um okkar yndislega fjörð, sem er notabene nabbli alheimsins:) Í þessari upptalningu er m.a. talað um; Norðurljósablús og Humarhátíð, íþróttahúsið, sundlaugina og ný í byggingu, fyrirhugað knattspyrnuhús og meiriháttar golfvöllur... ÞAÐ ER EKKI MINNST EINU ORÐI Á SVÆÐI HESTAMANNA OG REIÐHÖLLINA OKKAR!!! Mikið ofsalega fór það fyrir brjóstið á mér! hér er auglýsingin, góðar stundir
Posted at 11:38 am by kjonk
Wednesday, March 12, 2008
já! það var eitthvað við 12. mars sem klingdi lítilli bjöllu í höfðinu á mér í allan dag! og núna rétt í þessu fattaði ég hvaða merkisdagur þetta er!!!!! Hann Ottó Marwin minn sem varð 17 vetra 8. febrúar s.l. hefði átt að fæðast þennann dag, 12. mars, árið 1991. hann var bara aðeins að flíta sér þarna um árið... ... til þess að þóknast henni Helgu okkar :) en þeir sem ekki vita, þá fékk hún hann í afmælisgjöf:) góðar stundir
Posted at 4:52 pm by kjonk
|
|
|