|
MIÐVIKUDAGUR í dag!! þetta vissi ég! vikan er að verða búin:) Datt eitthvað niður í vondar hugsanir í fyrradag sem mér fannst ekkert voðalega gott! jújú... þetta getur gerst... en í dag er allt gott að frétta:) ég kíkti á strákana mína í Holtsenda í gær og fékk nýsteiktar kleinur og smá skemmtiatriði hjá honum Aroni sem er þvílíkur pjakkur... allavega þegar hann er kominn í spider-man eða bat-man búning... eða báða búningana bara! þá er sko hægt að hlaupa, klifra, hoppa og jafnvel fljúga! hahaha... allgjör prakkaradúlla:) alltaf gaman og gott að skreppa í sveitina. efst í mínum huga í dag er Ottó Marwin þegar hann var ekki allveg búinn að ná tökum á íslenskunni hihi...:) þá sagði hann t.d. 'staks' en meinti strax 'stíhbúl' en meinti bílskúr 'skeljung' en var að tala um melónu! 'stheippa' en meinti geyspa 'bappallinn' en var að tala um pallinn sinn sem hann stóð t.d. á til þess að ná uppí vaskinn til að bursta. svííítísvít :) það var erfiðara að skilja Róbert Marwin stundum... sum orðin hans er ekki einu sinni hægt að setja á prent! eins og t.d. hvernig hann sagði 'Halldóra' !! hehe... en hann hét t.d. Óbó = Róbert, Okkó = Ottó, Ísó = Ísold svo þegar hann gat nú orðið sagt 'handaða' = Halldóra þá uppgvötaði hann eitt allveg stórmerkilegt... 'handaða' allveg eins og 'bjóstahandaða' sem úleggst á íslensku einhvernvegin svona: 'Halldóra' allveg eins og 'brjóstahaldari' !!! hahahaha.... væmin og klesst segi ég þetta gott í bili, góðar stundir |
| fas-klessan March 26, 2008 02:56 PM PDT Þeir eru nú algjör snilld þessir strákar þínir, enda ekki skrítið þið sjáið nú hver mamma þeirra er ;) En annars þá held ég að þú getir ekkert farið í einhverja keppni við mig um það hvor er skrítnari því ég held að ég hafi alveg örugglega vinninginn, ha,ha. Þú ert alveg frábær og alltaf gott að hitta þig, gamla klessan mín og ekki breytast. kveðja frá skrítnu-skíta-fugla-fas klessunni hinummegin. | ||
| Svafa Mjöll March 27, 2008 10:06 AM PDT Til hamingju með litla drenginn þinn! Hugsaði sko til ykkar og hefði svo verið til í að vera með ykkur og fá kökur hehehe..En gaman að sjá að allt hafi tekist vel..enda ekki við öðru að búast hjá ykkur, og að strákurinn og þið séuð ánægð með daginn..Svoleiðis á það að vera..frábært! | ||
| Leave a Comment: |