það fer jú að líða að því að ég byrji að blogga á nýjum stað er að bögglast við að búa mér til síðu á 123.is :) eða hérna sko :) . þetta á að vera svo assssgoti auðvelt... og er það örugglega en hvernig í ósköpunum set ég smáfólkið í 'sértengla' ??? ég er bara ekki að fatta það!!! enda ljóska frammí fingurgóma hehehe.... en ég gat nú sett inn mynd og eitt albúm duglegan ég ekki meira um það í bili við erum búin að fá snjókomu hér í firðinum fagra í dag! þetta þikir nú ekki fréttnæmt tshuu.... en ég var ekki búin að segja ykkur frá því að við fengum gefins tvo hesta um páskana!!! þeir heita Hjörtur og Bróðir, komu frá Selfossi og eru frá þeim heiðurshjónum Sævari og Sibbu. Hjörtur og Bróðir eru eldgamlir en fallegir hestar, held að annar þeirra sé 18 vetra og hinn 20 eða 22 vetra!! sem er nú mjög mikið! Ætluðum að gefa Hjört áfram en svo tímdi Venni því ekki. Svo segir hann núna að Hjörtur sé farinn að bíða eftir mér inní hesthúsi rétt eins og hann Vinur! ég veit ég veit ég ætti nú að fara að skella mér á bak! en nei! er ekki á þeim buxunum.... spurning um að vera þá buxnalaus en aftur er svarið nei nei hehehe.... Um helgina á svo að dúndra ærlega í æðri endann og koma sér uppúr þessu sleni! þetta gengur ekki lengur! en hvað um það, læt þetta duga, góðar stundir
1 comments
kolla March 28, 2008 10:47 PM PDT þú bara býrð til nýjan tenglaflokk og svo þegar þú setur inn tengil á smáfólk þá velur þann flokk... písofkeik.. en ef þú þarft meiri aðstoð þá geturu bara haft samband.. mailið mitt er kh(hjá)espgroup.no .. eða msn kollatjorva(hjá)hotmail.com..
Góða helgi krúttið mitt