jájá það er allt í einhverju bulli á 123.is þar sem einhver uppfærsla fer fram. ég var að reyna að kíkja á vini mína sem þarna blogga en fæ allta sama vefinn upp! og efst á þessari síðu stendur; velkomin á vef ellimálanefndar þjóðkirkjunar! hahaha... snilld!? það er semsagt sunnudagur í dag, dagur letinnar:) samt tók ég nú aðeins skurk hér heima en bara rétt yfirborðið:) talaði við Halldóru sætu systir mína áðan... hún spurði mig hvort ég væri eitthvað langt niðri í þunglyndi því það væri enginn hemja hvernig ég hagaði mér..... ég get svo svarið það að ég hef ekki verið auðveldasta manneskja í umgengni undanfarið! ég viðurkenni það! ég missteig mig... þetta var mjög slæm tognun en nú er allt að lagast... eftir að fólkið sem ég elska mest og elskar mig, bentu mér á það! inn mæ feis! að ég þyrfti nú aðeins að slaka mér! jájá þetta er auðvelt að viðurkenna á prenti hehe... en anskotanum erfiðara að ræða það! en svona er þetta bara, maður ætlar ekki að vera vondur og leiðinlegur, maður ætlar ekki að tala illa um aðra, maður ætlar ekki koma illa fram við aðra... en svo kemur það fyrir að maður misstígur sig og þá er voðinn vís! og þar kemur sér með eindæmum vel að eiga góða að! ója held´ann sé að lægja úti... og þá er spurning um að enda þennann dag í hnakknum!! já þú ert að lesa rétt :) allveg spurning um að skella sér í útreiðatúr með elskunni sinni, bara við tvö, ríðum við inní sólsetrið (segir maður 'sólsetrið' ?) hahaha... mmmm... það er svo gott (þessa stundina) að vera ég :) jæja! kemur mútta með sæng í þurrkarann, góðar stundir
3 comments
dóra sys March 30, 2008 04:03 PM PDT Spurning um að ríða inn í prestsetrið í tilefni sunnudagsins? Það gæti nú verið sérdeilis fín útrás að mæta á klárnum inn á gólf hjá frú Kristínu nöfnu þinni. sei,sei.
kolla March 30, 2008 11:04 PM PDT já, þeir eru að uppfæra þessar elskur þarna á 123.is. Maður verður að vera þolinmóður á meðan.. þeir eru nú svo mikil krútt þarna.. og svo verður maður náttúrulega að styðja við íslenska hugbúnaðargerð.. það er bara skylda :)
Inga March 31, 2008 07:59 PM PDT Hæ hæ gamla
Taktu mig með einhverntímann inn í hesthús
Kv
IKS