|
en ég verð að hryggja ykkur með því að ég var bara að plata! ég var löt og skrifaði blogg... en um leið og ég loggaði mig út, kom yfir mig einhver ógnarkraftur! skil þetta ekki! Mokaði semsagt (í orðsins fyllstu) útúr herberginu hans Ottós Marwins!! phúff þvílíkt samansafn af allskonar rusli! hehe... hann er duglegur við vera latur að taka til hehe... en saman tókum við herbergið hans í nefið újehhh... síðan var arkað af stað í hesthúsin og þar sem mér fannst skítkalt fór ég ekki í hnakkinn heldur mokaði stíuna hjá Vargi og Gróða! semsagt = leti á sunnudögum?!! ekki þennann sunnudag;) sveif um eins og Ajax-stormurinn! þvílíkur var krafturinn hehe.... Í dag er svo fermingarafmæli!!! töttögogfemmár! jebbs, ég á 25 ára fermingarafmæli í dag! seiseisei... Venna fannst það eitthvað skrítið! því það væru ekki nema svona mestalagi 10 ár síðan hann fermdist hahaha... ég hef semsagt fermst langt á undan honum hahaha.... en svona er þetta bara, tíminn líður, eiginlega flýgur áfram. Ég verð að fara að dröslast í heimsókn í sveitnina mína, er að safna mér pening áður en ég held af stað þangað:) fékk nefninlega þennann líka æðislega góða lax á hótelinu mínu þarna fyrir páska, allgjört lostæti:) en þar sem heimsendingar- þjónusta hótelsins var ekki með posa (hehe) þá á ég eftir að borga fyrir herlegheitin :) en þetta stendur til bóta:) er að verða komin með hálsríg (mikill peningur undir koddanum) æji voðalega getur maður bullað seisei... horfði á Venna minn fara á bak honum Hirti í gær, af því að þetta á nú að vera gæðingur fyrir mig! mér leist nú ekki á blikuna ha!? úff ég hefði nú öskrað úr hræðslu! en ég held nú að ég verði að fara að skammast til þess að fara á bak! en bíð bara eftir aðeins betra veðri, ha? en hvað um það, vonandi verður 123.is orðið klárt næst þegar ég þarf að tjá mig:) hlakka til að hefja rausið á nýjum stað :) þangað til næst á nýjum slóðum, góðar stundir |
| Leave a Comment: |