ég get nú svo svarið það að ég var búin að borga hjá 123.is áður en þeir lokuðu síðunni minni! og það gengur ekkert hjá mér að láta opna aftur! en þar sem ég er með eindæmum róleg manneskja þá bíð ég bara eftir því að þeir opni en það er samt frekar erfitt að geta ekki bloggað þegar maður getur ekki bloggað!! :/ haha... af því að ég er nú duglegasti blogger ever! ho ho en hvað um það hér kemur allavega eitt... um ekki neitt:) þetta er allavega sama gamla tuggan, læk olveis ;) Þetta er eiginlega mjög erfið vika! þar sem hún telur allveg 5 vinnudaga :) það var svo gott að fá sumardaginn fyrsta = frí, 1. maí/uppstigningardag = frí, ekkert frí í þessari viku (jæks), en svo mánudaginn 12. maí, annar í hvítasunnu = frí :) næs;) Ég er lítið búin að nenna í hesthúsin.... en dreif mig í gærkvöldi til þess að vera eitthvað með honum Venna mínum sem er ferlega duglegur að fara í hesthúsin til þess að brasa eitthvað og ég var bara farin að sakna hans ferlega mikið.... :) Við tókum hann Prins (Tittinn) sem er vetur gamall, yfir í hesthúsið til okkar til þess að spjalla aðeins við hann, gefa honum kúlur og spekj'ann :) ætluðum að gera þetta í vetur! en eins og pabbi (eigandinn) sagði; betra er seint en alldrei! jebbs! Prófuðum að sækja um beitland hjá bænum í gær... eigum nú ekkert von á að fá úthlutað! en það kemur í ljós... Nú, svo koma Legó-arnir heim í dag, frábært hvað það er búið að vera gaman og gott hjá þeim þarna útí USA :) maður er auðvitað búin að fylgjast með á síðunni hans siggalitla :) Anna María hefur séð um að koma fréttunum yfir hafið og gera mann grænann úr öfund í leiðinni! því auðvitað langaði manni allveg að kíkja í mallið til dæmis!! hehe.... ég prófaði að ath um aðra vinnu í gær og svo kemur bara í ljós fljótlega hvort ég sæki um eða ekki :) ég læt auðvitað vita:) Langar og langar ekki að skifta um vinnu..... æji! veit ekkert í hvorn fótinn ég á að stíga þannig að ég stend bara í báðar ho ho ho.... best að hætta að bulla um ekki neitt... góðar stundir