Entry: BlammPlamm Thursday, May 08, 2008



verð að hafa orð á því hér (þó ég fái ekki borgað fyrir að segja það)
hvað hann Boggi er duglegur :<) hehehe....
Hann á nefninlega svo frábæra konu sem er allveg rosalega dugleg,
of dugleg stundum ;) en hún tók til hendinni heima svo um munaði :)
það er búið að henda ýmsu út, færa ýmislegt til og mála!
takk fyrir!!! Boggi hjálpar til við þetta... hahaha.....
hann má nú eiga eitt og vera stoltur af! á meðan Helga rauk til
og keypti klemmur í gær fór Boggi og keypti þurrkara :)
En ég vil samt benda á, að það sem '70 árg getur
gerir '69 árg svo MIKLU betur :) Jæja Boggi! ég er búin að blogga
hvað þú ert duglegur:) hahaha.....

Í gær voru kúlurnar teknar úr Prins (geltur) og var því ekkert
annað í stöðunni en fara með hann og trippin tvö í sveitina mína.
Rúntuðum á Smyrla, fengum mat og drukk, slepptum hestunum
útá tún, brunuðum austur aftur, hittum bændurna í Bjarnanesi,
fórum inn í kaffi og ég fékk annann drukk, við sátum og spjölluðum
í dágóða stund, skelltum okkur svo í hesthúsið og gáfum og settum inn,
sáum svo að það var ljós á Seljavallahjáleið, bönkuðum uppá
hjá Geira og Völu til þess að taka í spaðann á honum Ásgeiri
sem er endalaust melló og líbó og gerir allt sem maður biður hann um,
hann setti inn fyrir okkur heyrúllur á meðan við vorum í
sveit sólar. Okkur var auðvitað boðið inn og í vínsmökkun með svindli,
ég segi svindli því ég var nú ekkert að hrækja því! drakk bara
úr glasinu eins og hefðakonum sæma þykir! hehe...

Heim í ból komum við ekki fyrr en seint og um síðir en mikið rosalega
er ég stolt af því að hafa heimsótt þrjá bæi á einninúllátta!
eða sko á einu kveldi:) þetta var svo gaman að ég bara verð
að draga hann Venna minn í svona leiðangur með mér fljótt aftur:)
ég fór nú reyndar á fjóra bæi! skrapp nú í holtsendann að kíkja
á framkvæmdir og knúsast í strákunum mínum :*
Aron spurði; Stína, hvað ertu gömul? haha.... honum finnst
skrítið að ég er kölluð 'amma' á heimilinu!  HAhaha...
Vignir dundaði sér við að drepa flugu... :/ ég reyndi að
kenna honum að vera hræddur við þær:) en það gekk ekki!

góðar stundir:*

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments